Beina leiđ á efnisyfirlit ţessarar síđu

Um Vefinn

Hvað er Rokk.is?

Rokk.is er vefur sem hefur það eina markmið að kynna og koma á framfæri íslenskri tónlist. Á Rokk.is geta notendur sótt sér tónlist íslenskra hljómsveita sér að kostnaðarlausu. Öll tónlistin á vefnum er lögð til af hljómsveitunum sjálfum í fullu samráði við eigendur flutningsréttar. Notendur Rokk.is geta því hlaðið niður hljóðskrám fullir öryggiskenndar.

Skráning flytjanda

Flytjendur geta skráð sig með því að smella á tengilinn "Skrá flytjanda" hér til vinstri. Þar er beðið um grunnupplýsingar um flytjandann ásamt upplýsingum um tengilið flytjandans við Rokk.is. Mikilvægt er að fylla út allar upplýsingar eftir bestu getu. Þegar flytjandi hefur skráð sig þarf viðkomandi að senda 1 - 12 lög, sem hann á fullan höfundar- og útgáfurétt á, á mp3 sniði. Lögin skal senda á netfangið rokk@rokk.is, eitt í einu ásamt lagaheiti og nafni flytjanda. Einnig er gott að flytjandi sendi eina góða mynd af sér til birtingar á vefnum.
Með því að skrá sig á Rokk.is kemur þú þinni tónlist á framfæri til margra sem annars hefðu ekki aðgang að henni. Það hefur sýnt sig að takmörkuð ókeypis dreifing á tónlistarefni eykur mjög kynningu á flytjandanum sem svo leiðir til aukinnar sölu á efni hans.

Hvað kostar að vera með?

Skráning á Rokk.is kostar ekki neitt og mun ekki koma til með að kosta neitt.

Fyrir hverja er Rokk.is?

Alla flytjendur sem hafa áhuga á að koma tónlist sinni á framfæri og kynna sig á mjög einfaldan hátt.
Alla notendur sem hafa áhuga á að kynna sér íslenska tónlist á mjög ódýran hátt.

,

Fyrir hverja er Rokk.is ekki?

Árna Johnsen, Geir Ólafsson, Hallbjörn Hjartarson, Björgvin Halldórsson og Magnús Kjartansson. Þeir mega hvorki skrá sig né ná í lög hér.

Hverjir eru Rokk.is?

Hákon Hrafn Sigurðsson - hakon@rokk.is

Þórhalla Gunnarsdóttir- tori@rokk.is

Maggi trymbill- maggi@trymbill.is

Eddi hnífur- lifur@visir.is

Halli sport - bonzo@heimsnet.is

Rokk.is útvarpsþátturinn

Rokk.is þátturinn er í fríi..

 

 

tómt

besti vefur i heimi

Leikjanet.is


Stađan

  • Flytjendur: 1549
  • Lög : 4596
  • Gagnrýni : 984
  • Myndbönd : 75